gunnlaugur.annáll.is

AnnállAf fréttum og fjölmiðlumÁhrif G.t. í samtíðinniBókakynningarDagbókG.t.-fræðingurinn Guðfr.-alm. Guðfræðideild Gyðingd./ Ísrael Íþróttir KennslaKirkjan KvikmyndirMenningMinnisstæðar persónur og viðburðirRannsóknir og fyrirlestrar

« Fjölbreytilegar Gt-ritgerðir · Heim · Til fundar við frændur »

Nýtt vín …? Lítill ferskleikablær á nýju stjórninni

Gunnlaugur A. Jónsson @ 00.13 23/5/07

Við fyrstu sýn virðist furðu lítill ferskleikablær á þeirri ríkisstjórn Geirs Haarde sem varð til í kvöld og hefur þegar hlotið fleiri nöfn en nokkurr önnur stjórn.

Uppsláttur fjölmiðla um jafnt kynjahlutfall meðal ráðherra Samfylkingar virðist allt að því klaufaleg fréttamennska í ljósi þess að þannig var jú kynjahlutfallið meðal Framsóknarflokksins og vakti ekki athygli, hvað þá að flokkurinn sá fengi hrós fyrir.

Varla á við að tala um nýtt vín á gömlum belgjum hér. Það sem maður hefur þegar heyrt af málefnasamningi hinnar nýju stjórnar sætir nefnilega ekki miklum tíðindum. Þegar Össur talar t.d. um “sátt milli náttúruverndar og framkvæmda” þá eru þau orð nánast orðrétt úr munni Jónínu Bjartmarz og Jóns Sigurðssonar.

Rétt er þó að hafa í huga að ríkisstjórnarsáttmálinn hefur ekki enn komið fyrir augu almennings.

Breytingar á ráðherraliði Sjálfstæðisflokks voru eins litlar og hugsast gat. Guðlaugur Þór kom í stað Sturlu. Það gladdi mig að Björn Bjarnason skyldi ekki hrakinn úr embætti. Nóg áhrif hefur auglýsing Jóhannesar i Bónus þegar haft.

Ingibjörg Sólrún stóð við fyrirheitið um kynjakvótann en tók Þórunni fram yfir Katrínu (sem var ofar á listanum í Kraganum) á grundvelli faglegra sjónarmiða (sérfræðiþekkingar), eftir því sem ISG sagði.

En sérfræðiþekking réð síður ferðinni hjá henni þegar Björgvin, hinn ágæti heimspekingur, var skipaður viðskiptaráðherra á kostnað efnilegasta þingmanns flokksins, Ágústs Ólafs varaformanns, sem er með menntun á fræðasviði ráðherrastólsins – auk lögfræði, þ.e. tvöfalt háskólapróf auk fjölmargra annarra hæfileika.

Sést enda í bloggheimum að mestum tíðindum þykir sæta við niðurröðun í ráðherrastólana að gengið er framhjá varaformanni Samfylkingarinnar. Slíkt hefði þótt fréttnæmt óháð því hver gegndi því embætti.

En slíkur heiðursmaður sem Ágúst Ólafur er þá tekur hann niðurstöðunni af jafnaðargeði og leitast við að skilja og skýra afstöðu formanns flokksins á vefsíðu sinni. www.agustolafur.blog.is

Drengilega gert hjá Ágústi og honum til sóma. En ég neita því ekkert að ég er óhress með að sjá ekki þennan efnilega stjórnmálamann á ráðherrastóli. Þar fer svo sannarlega maður sem kann sitt fag og með ríka réttlætistilfinningu að auki. Björgvini og öðrum ráðherrum óska ég til hamingju og alls hins besta í vandasömum störfum.

Viðreisnarstjórnin hefur ljóma yfir sér í minningu margra Íslendinga og engu skal hér spáð um hvort þessi stjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar (arftaka Alþýðuflokksins?)  á eftir að hljóta svipuð eftirmæli.

En vitaskuld óskar maður ríkisstjórninni allri velfarnaðar og þess að hún muni reynast íslenskri þjóð vel.

url: http://gunnlaugur.annall.is/2007-05-23/nytt-vin-litill-ferskleikablaer-a-nyju-stjorninni/

Athugasemdir

Fjöldi 5, nýjasta neðst

Pétur Björgvin @ 23/5/2007 00.47

já það verður fróðlegt að sjá málefnasamninginn og fylgjast með framkvæmd hans þegar þetta vaska lið tekur til hendinni.

Torfi Stefánsson @ 23/5/2007 07.58

Það er nú ekkert skrítið Gunnlaugur að þú hafi viljað fá tengdason þinn í ráðherrastól! En finnst þér nú ekki óviðeigandi af þér að vera setja það á blað hér vegna þess hve málið er þér nátengt?

Annars er ég sammála þér. Það er eins og verið sé að gefa í skyn að það hafi verið mistök að gera Ágúst Ólaf að varaformanni flokksins. Á móti má þó segja að það var erfitt að ganga fram hjá Össuri því hann lenti jú í öðru sætinu í prófkjörinu en Ágúst einungis í því fjórða.

Þá er Björgvin auðvitað þarna inni sem landsbyggðarþingmaður. Athyglisvert að það er gamli krataflokkurinn sem heldur uppi heiðri landsbyggðarinnar, sem átti aldrei neitt fylgi úti á landi, en Sjallinn hunsar hana þrátt fyrir mikið fylgi um allt land alla tíð. Ætli þetta sýni ekki best að Sjálfstæðisflokkurinn er orðinn að hagmunasamtökum þotuliðsins hér á suðvesturhorninu?

Gunnlaugur @ 23/5/2007 08.41

Ég hef skilmerkilega gert grein fyrir því Torfi í fyrri pistli að augljóslega sé mat mitt í þessum efnum litað af þessum tengslum og hér er ég eins og í ýmsum öðrum málum að segja mína persónulegu skoðun eða fréttir af mínum sjónarhóli eða hlaðvarpa (sbr. hið ágæta orð dr. Björns Björnssonar prófessors emerítus “hlaðvarpaguðfræði” um ýmsar nýrri stefnur í guðfræðinni þar sem sjónarhóllinn er bæjarhlaðið. Miklu flottara orð en “aðstæðuguðfræði”). Ég hef leyft mér að vera hreinskilinn og hef áður gert grein fyrir tengslum mínum við ÁÓÁ á þessai vefsíðu. Þetta ættir þú nú að skilja því að ef það er einhver eiginleiki sem einkennir þig þá finnst mér það vera hreinskilni og mikið síður tilfinning fyrir því hvað sé “viðeigandi”! Ég held að þú myndir jafnvel viðurkenna það sjálfur-;)
Annars hef ég velt því fyrir mér hvers vegna ég er yfirleitt að standa í þessum færslum og komist að því að þarna sameinast rótgróin dagbókarárátta mín og reynsla af blaðmennsku og svo kannski í þriðja lagi viljinn til að halda úti dálitlum fréttum fyrir systur mínar fjórar sem búa erlendis og fjölskyldur þeirra. Það sparar mér bréfaskriftir til þeirra. Mér finnst því gott að vera á svona tiltölulega lokuðum vettvangi og langar alls ekki á Moggabloggið.
Raunar var það ekkert sem kom mér á óvart við skipun í ráðherrastólana og finnst að Ágúst Ólafur hafi strax í gærkvöldi skrifað flottan pistil um niðurstöðuna þar sem hann skýrir hana og er sannarlega ekki með neinn fýlupokahátt, enda ekki hans stíll. Björgvin Sigurðsson verður örugglega fínn ráðherra en frekar hefði ég viljað sjá hann á stóli menntamála. Þar liggur sérsvið þess ágæta drengs. Þakka þér svo tilskrifin Torfi. Bestu kveðjur af hlaðvarpanum í Bollagörðum á Seltjarnarnesi.

Árni Svanur @ 23/5/2007 10.53

Ég held að Ágúst Ólafur eigi eftir að styrkja sig heilmikið og það felst áreiðanlega tækifæri í því að hafa innra starf flokksins. Annars finnst mér gaman að sjá hvað hann nýtir sér bloggið vel, held að þar sé sóknarfæri fyrir stjórnmálamenn.

Þorkell @ 23/5/2007 11.01

Ekki vera að afsaka skrif þín Gunnlaugur. Þetta er flottur pistill og gildir punktar, sama hver tengslin eru. Svo finnst mér bloggið þitt miklu skemmtilegra en Mogginn. Því bið ég þig að halda áfram þínu góða og óeigingjarna starfi, hvað svo sem Torfum þessa heims finnst um framtakið.


© gunnlaugur.annáll.is · Færslur · Ummæli