“… nema hjá stöku trúfífli”
Gunnlaugur A. Jónsson @ 11.11 23/6/08
Í grein Guðmundar Arna Thorssonar í Fréttablaðinu í dag (23.6, s. 16) er að finna eftirfarandi staðhæfingu: “Við erum svo lánsöm hér að gamla testamentið er ekki lagt til grundvallar nokkrum hlut nema hjá stöku trúfífli.”
Ýmsir álitsgjafar þjóðarinnar hafa upp á síðkastið oft talað um að mikilvægt sé að gera grín að trú og trúarbrögðum. Sjálfur tel ég að kristin trú þoli vel að gert sé grín að henni, að kristnir menn eigi sem minnst að kveinka sér undan því og ég hef ekki orðið var að þjóðkirkjufólk yfirleitt sé sérstaklega viðkvæmt fyrir slíku.
Við sem fáumst við rannsóknir á margvíslegum (menningar)áhrifum Gamla testamentisins hljótum þó að undrast yfirlýsingu eins og þessa frá velmenntuðum og glöggum rithöfundi eins og Guðmundi Andra. Ekki vegna einhverrar viðkvæmni heldur vegna þess að þessi staðhæfing er einfaldlega röng. En samkvæmt ofangreindri staðhæfingu hans hlýt ég að skipa mér í hóp “trúfífla”.